Öll áföll, hvort sem þau eru andleg, líkamleg, tilfinningaleg eða tengjast mannlegum samskiptum, hafa áhrif á líkamann. Heilun eftir áfall hefst í líkamanum. Líkaminn er ítarleg heimild um reynslu okkar á lífsleiðinni og það er því nauðsynlegt að taka mið af líkamanum í heilunarferlinu.
-David Berceli, Ph.D.
Þú hefur prófað að hugsa þig út úr þreytu, verkjum og kulnun. En hvað ef lausnin er ekki í huganum — heldur í líkamanum? Líkaminn er lykillinn er 12 mánaða hópnámskeið þar sem við lærum að hlusta á, treysta og vinna með líkamann — með samkennd, núvitund og samstillingu sem hjálpar öllum.
Kulnun, krónískir verkir og síþreyta eru ekki einkenni veikleika. Þau eru skilaboð frá taugakerfi sem hefur verið of lengi í viðbragðsstöðu — og hefur lært að vernda þig með því að slökkva á þér, deyfa sig.
Á þessum 12 mánuðum förum við saman í ferð sem virkar með líkamanum eins og hann er í dag. Við sameinum TRE, öndun, bandvefslosun, polyvagal kenninguna, EMDR bjargráð, líkamsvitund og partavinnu — og við vefum inn samkennd og núvitund sem rauðan þráð í gegnum allt.
Við hittumst reglulega í hóp — bæði í sal og úti í náttúrunni — þar sem hreyfing og náttúrutenging eru hluti af lækningaferlinu. Rannsóknir sýna að náttúran og líkamleg hreyfing í hóp eflir taugakerfið á þann máta sem erfitt er að ná með öðrum hætti.
Hópurinn sjálfur er hluti af meðferðinni. Þegar við sáum okkur í öðrum, heyrum sögurnar og vitum að við erum ekki ein — þá byrjar eitthvað að losna. Það er krafturinn í hópefli.
Og heilinn getur breyst. Líkaminn getur lært að finna jafnvægi aftur — ekki með þrýstingi, heldur með þolinmæði, samkennd og réttum verkfærum.
Leiðbeinendur Sigríður Björnsdóttir, sálfræðingur og vottaður EMDR sérfræðingur, og Svava Brooks, sérfræðingur í líkamsvitund og TRE. Þetta er lítill og náinn hópur — 12 til 18 þátttakendur — þar sem öryggi og traust eru grunnurinn að öllu. Þú þarft ekki að vera tilbúin/n til að laga allt. Þú þarft bara að vera tilbúin/n að hlusta.
Föstudaga kl. 9-12.00 hjá Yogavin
Fimmtudaga 20.00-22.00 á Zoom
Sjá nánari dagsetningar neðar.
Verð: 598.000 kr (hægt er að dreifa greiðslum)
Nánari upplýsingar og skráning: Sigríður Björnsdóttir hjá [email protected] eða Svövu Brooks hjá [email protected]
Nánari dagskrá er send á þátttakendur eftir skráningu
Staðsetning:
Yogavin, Grensásvegi 16, 108 Reykjavík.
eða á Zoom.
"Algjörlega magnað námskeið. Trúi varla hvað það gerði mér rosalega mikið gott. Þið eruð magnaðar í ykkar starfi. "
"Frábært námskeið. Mjög gagnlegt og góð verkfæri í kistuna mína. Góðir leiðbeinendur."
"Áhrifamikið námskeið fyrir sál og líkama. Verkfæri til að ná ró og frið og tengjast sjálfum sér betur, sem eru raunveruleg og gagnleg."
"Þeim Siggu og Svövu tókst að skapa ótrúlega gott andrúmsloft á námskeiðinu. Allir upplifðu líka persónulega nálgun og að það væri hlúð að hverri og einni, þó svo að um hópnámskeið væri að ræða. Mjög fagleg nálgun en einnig mjög hagnýt. Gott að taka bjargráðin saman í lokin og gott að byrja að vinna saman að leiðarljósum námskeiðsins. Þetta er klárlega námskeið sem ég á eftir að nýta mér í framtíðinni. Hlakka til þess. Takk fyrir mig."
"Í stuttu máli bæði áhugavert og árangursríkt námskeið. Fræðilegt, faglegt, mannlegt og skemmtilegt. Ég fann fyrir ástríðu frá Siggu og Svövu fyrir viðfangsefninu, þekking þeirra mikil og ekki síður var hversu mikla umhyggju þær sýndu þátttakendum. Hópurinn sjálfur var frábær og mikil samkennd. Ég mun mæla með þessu námskeiði við aðra. "
"Ég vissi ekki hverju ég átti að búast við af þessu námskeiði. Það fór fram úr björtustu vonum. Hópurinn góður og leiðbeinendur góðir. "
"Góð handleiðsla og mjög greinilegt að Svövu og Siggu er mjög annt um hópinn. Ég var hrædd um að sitja eftir með rót í huga eftir EMDR meðferðina en það reyndist ástæðulaust."
"Mér fannst gott hversu nærgætna, glaðar, uppörvandi, jákvæðar, klárar, yfirvegaðaqr og sterkar kennararnir eruð. Traustar og reynslumiklar, gefandi og allt. Að fá tækifæri til að eignast verkfeæri til að hjálpa sér í daglegu lífi til að minnka streitu og aðra vanlíðan í kroppnum. ÉG er þakklát mér að hafa komið mér hingað á þetta námskeið. Einnig afar þakklát ykkur. "
"Námskeiðið er bara fullkomið og þið gefið svo mikið af ykkur, hafið dásamlega nærveru og orku og staðurinn róandi og góð áhrif á mann. Svo þakklát fyrir að það er fólk eins og þið að deila reynslu og þekkingu okkur til góðs, batnaðar og betri líkamlegrar og andlegrar líðunar. Þetta mun nýtast mér mjög vel, finnst eins og ég hafi upplifað eitthvað yfirnáttúrulegt."
"Djúp og falleg nálgun. Mikið lagt upp með að skapa öruggt rými sem er ákaflega mikilvægt, lykilatriði. Gott að hvetja okkur að fara hægt með mildi og þolinmæði. Gott að þurfa endurtekið að fara inná við og meta sitt ástand á streituskala. Ófullkomnun, ekki hægt að gera vitlaust, mikilvægt að nefna. Allir með rödd, allir mikilvægir."
EMDR hópameðferð er frábrugðin hefðbundinni hópameðferð að því leyti að þátttakendur vinna sjálfstætt og ræða ekki áfallasögu sína við aðra. EMDR hópameðferð krefst ekki að aðilar í hópnum séu að vinna með sama vanda. Þannig forðast einstaklingar hvers kyns aukakveikjur, komast framhjá mögulegum félagslegum kvíða sem tengist því að tala í hópi og hagnast af þeim jákvæða ávinningi sem sameiginleg hópaupplifun getur verið (Yalom, 1970).
Sigríður hefur starfað á einkareknum sálfræðistofum frá útskrift M.Sc í sálfræði frá HR 2018. Hún er í reglulegri handleiðslu bæði hjá íslenskum og erlendum handleiðurum og tekur markvisst þátt í þjálfun og endurmenntun á EMDR meðferðarforminu og mikilvægri sérhæfingu því tengdu.Hún sérhæfir sig í úrlausn áfalla, bæði flókinna áfalla og vegna áfallastreituröskunar auk almennrar sálfræðiþjónstu. Nánari upplýsingar um Sigríði og EMDRsetrinu hér.
TRE® (Tension, Stress & Trauma Release) er leið til að hjálpa líkamanum að losa um spennu, streitu og áföll sem liggja djúpt í vöðvum líkamans. Leiðin er þróuð af Dr. David Berceli PhD til að virkja náttúruleg viðbrögð líkamans á öruggan hátt með því að leyfa líkamanum að skjálfa eða titra til að losa um vöðvaspennu og róa taugakerfið. Með því að virkja þessi náttúrulegu viðbrögð líkamans í öruggu umhverfu, er verið að hvetja líkamann til þess að endurheimta jafnvægi sitt og ná slökun eftir langvarandi streitu.
Svava Brooks hefur unnið með TRE ráðgjöf síðan 2017 og bandvefslosun síðan 2024.
Svava hefur unnið með sjálfshjálparhópa á vegum einkafyrirtækja, stofnana og grasrótarsamtaka síðastliðinn 9 ár, við forvarnir gegn kynferðisofbeldi síðastliðinn 15. ár. Svava býður upp á fræðslu og námskeið um áhrif streitu og áföll á heilsu og líðan, fyrir fyrirtæki og stofnannir. Svava er að ljúka 2025 TRE trainer vottun og tekur reglulega þátt í frekari þjálfun í TRE, og síðast hefur setið námskeið til að kenna börnum TRE. Hægt er að fræðast meira um Svövu og TRE á heimasíðu hennar: svavabrooks.com/tre
Til undirbúnings fyrir þetta helgarnámskeið bjóðum við upp á stutt spjall þar sem við svörum spurningum um námskeiðið.
Sendu á okkur nafn og netfang og við höfum samband við þig!
Þetta námskeið hentar þér ef þú:
Þetta er ekki fyrir þig ef:
Við erum tvíburasystur sem höfum farið hvor sína leið — önnur í líkamann, hin í hugann og taugakerfið. Í dag sameinum við þessar leiðir í rými þar sem líkaminn fær að sleppa, taugakerfið að finna öryggi og raunveruleg breyting getur átt sér stað. Líkaminn er lykillinn.
Við erum tvíburasystur — og höfum farið hvor sína leið— í líkama, huga og taugakerfi. En báðar höfum við unnið djúpt í okkur sjálfum í yfir þrjátíu ár.
Svava fór leið líkamans. Hún lærði á eigin skinni hvað það þýðir að bera þungar minningar í líkamanum og taugakerfinu — og hvernig líkaminn getur, með réttum verkfærum og samkennd, farið að sleppa og treysta — þannig að líkaminn geti farið að upplifa öryggi á ný. Hefur unnið sem vottaður TRE leiðbeinandi í tíu ár með áherslu á líkamsvitund, bandvefslousn og samkennd.
Sigríður fór leið hugans og sálarinnar. Hún lærði hvernig áföll lifa í minnisnetum, í viðbrögðum og í þeim hluta taugakerfisins sem reynir að vernda okkur — og hvernig við getum unnið úr þeim á þann hátt að taugakerfið fari að upplifa öryggi á ný. Í dag er hún klínískur sálfræðingur og vottaður EMDR sérfræðingur með yfir tíu ára reynslu af áfallaúrvinnslu, partavinnu og hópmeðferð.
Við eigum líka sameiginlega sögu. Við stofnuðum saman Blátt áfram — félagasamtök um forvarnir gegn kynferðisofbeldi á börnum — og unnum hlið við hlið í yfir fimmtán ár. Þar sáum við, aftur og aftur, hvað gerist þegar fólk fær raunverulegt rými til að mæta sjálfu sér — og hvað gerist þegar líkaminn og hugurinn fá að vinna saman.
Við vitum hvað það þýðir að standa fyrir eitthvað stærra en við sjálfar. Og við vitum líka hvað það þýðir að þurfa að finna aftur til sín — í líkamanum, í sálinni og í tengslum við aðra.
Þetta námskeið er afsprengi þessarar vegferðar. Tveggja leiða — tveggja tungumála — hugans og líkamans, sem runnu saman.
Við bjóðum það vegna þess að við höfum báðar upplifað hvað gerist þegar þessi tvö svið mætast:
þegar líkaminn fer að sleppa og treysta og taugakerfið finnur aftur öryggi,
þegar við getum unnið úr því sem við höfum borið — þannig að raunveruleg breyting verði,
og þegar hópurinn heldur utan um þig á þann hátt sem engin einstaklingsvinna getur gert ein og sér.
Líkaminn er lykillinn. Þegar hann sleppir og taugakerfið finnur öryggi, getur raunveruleg breyting átt sér stað.
Við hlökkum til að ganga þessa leið með þér.
50% Complete
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit, sed do eiusmod tempor incididunt ut labore et dolore magna aliqua.