Að Hlusta á líkamann.

 

Vinnubók með verkfærum til að styðja taugakerfið og TRE-ferlið

 

Líkaminn okkar er stöðugt að senda okkur skilaboð.
Um streitu. Um þreytu. Um þörf fyrir hvíld, öryggi og mildi.

Eitthvað gerði það að verkum að við hættum að hlusta.
Stundum vantar bara stuðning til að byrja aftur.

Að hlusta á líkamann er vinnubók sem styður þig í að tengjast líkamanum á ný — í ró, með sjálfsmildi og í þínum takti.

Fyrir hvern er vinnubókin?

Þessi vinnubók er fyrir þig sem:

  • hefur kynnt þér TRE eða líkamsmiðaða vinnu
  • finnur fyrir streitu, ofálagi eða þreytu
  • vilt styðja taugakerfið á mildan og öruggan hátt 
  • vilt halda áfram eftir TRE-námskeið eða aðra líkamsvinnu
  • vilt læra að lesa líðan líkamans fyrr

Þú þarft ekki að gera þetta „rétt“.

Þú þarft aðeins að vera tilbúin(n) að taka eftir.

Hvað er í vinnubókinni?

 

Vinnubókin er ætluð sem stuðningur, ekki verkefnalisti.
Hún er byggð á TRE, taugakerfisfræðum og reynslu úr kennslu.

Í bókinni finnur þú:

  • aðgengilegan ramma um taugakerfið

  • skýra og milda nálgun á TRE

  • valin verkfæri sem styðja ró, öryggi og sjálfsstýringu

  • dagbókar- og æfingarsíður til að taka eftir líðan

  • kafla um áframhaldandi ástundun eftir námskeið

Allt sett fram með það að leiðarljósi að minna er meira.

Hvernig er vinnubókin notuð?

 

  • Þegar hentar þér

  • Þegar þú þarft á stuðningi að halda

  • Aftur og aftur — ekkert sem þarf að „klára“

Sumar síður eru til að lesa.
Aðrar til að skrifa á.
Sumar mega vera tómar.

Af hverju þessi nálgun?

 

Taugakerfið breytist ekki undir pressu,
heldur við:

  • öryggi

  • endurtekningu

  • mildi

  • traust

Þessi vinnubók er hönnuð með tilliti til næmni í taugakerfi og fólks í bata- og breytingaferli.


Hagnýtar upplýsingar

  • Form: PDF

  • Lengd: ~45 síður

  • Notkun: Persónuleg ástundun

  • Verð: 6.900 kr

Eitt skipti. Engin áskrift. Engin skuldbinding.

Eftir greiðslu verður bókin send með tölvupósti innann 48 klst.

Markmiðið er að bygga upp traust samband við líkamann.

TRE er ekki aðferð til að laga þig.

TRE er leið til að hlusta á líkamann.

Ferlið er milt.
Ferlið er hægt og rólegt.
Ferlið er þitt.

Þetta er ekki bók sem segir þér hvað þú eigir að gera.
Hún býður þér að hlusta.

Á líkamann.
Á mörkin.
Á það sem þú þarft núna.

Með mildi. Með forvitni. Með trausti.

Með hönd á hjarta!

— Svava